Fyrsta húsið:
Sölkugata.

Fyrsta byggingin sem reist er með Cubit-einingakerfinu er 380 m² einbýlishús við Sölkugötu í Mosfellsbæ. Hér má fylgjast með byggingarsögunni. Smíði stálgrindanna fór fram í verksmiðju og á meðan voru sökklar undirbúnir á byggingarstað. Loks var uppsetning byggingareininga fyrir þetta tveggja hæða hús gerð á tveimur dögum.

Sölkugata, uppsetning húseininga á 2. hæð
2 hæðir Staðlaðar rýmiseiningar á steyptum grunni
12 myndir Uppsetning 1. og 2. hæðar í tímaröð
2 dagar Báðar hæðir hífðar og boltaðar saman

UPPSETNING Í TÍMARÖÐ

Einingum raðað saman

01 / 12 Fyrri dagur

Sökklar og steyptur grunnur tilbúnir áður en fyrsta einingin kemur á byggingarstað.

BYGGINGARSAGAN

Frá framleiðslu í verksmiðju að uppsettu húsi

Bygging fyrsta Cubit-hússins við Sölkugötu skiptist í þrjá skýra áfanga þar sem undirbúningur á lóð og verksmiðjusmíði fóru fram samhliða.

ÁFANGI 01

Undirstöður á lóð og rammar í smíðum

Meðan jarðvinna, steyptir sökklar og gólfplata með gólfhitalögnum voru unnin við Sölkugötu voru stálgrindur rýmiseininganna framleiddar innandyra í verksmiðju. Sérstakir mátar voru notaðir á sökklana til að tryggja nákvæmni við niðursetningu eininganna.

Hver stálgrind er 2,55 metrar á breidd með stöðluðum tengipunktum á hornum og burðarbitum með götum fyrir lagnir.

Stálgrind rýmiseiningar í smíðum í verksmiðju
Eining með gólfhitapípum og járnbendingu tilbúin fyrir gólfsteypu
Eining með steyptu gólfi og ísettum glugga
Sökklar með mátum á lóð við Sölkugötu
ÁFANGI 02

Flutningur og uppsetning

Fullsmíðaðar einingar komu á venjulegum flutningavögnum í Sölkugötu án sérleyfa eða lögreglufylgdar. Kranabíll hífði hverja einingu beint af vagni og niður á tilbúna sökkla á 1. hæð og ofan á hana fyrir 2. hæð.

Hornpunktar eininganna voru boltaðir saman með stöðluðum stáltengjum. Gluggar og rennihurðir voru þegar komin í einingarnar úr verksmiðju, þannig að húsið lokaðist fyrir veðri og vindum.

Rýmiseining kemur á hefðbundnum flutningabíl og er hífð beint á grunninn
Eining með forsmíðuðum gluggum hífð á sinn stað á 1. hæð
Kranabíll hífir einingu yfir vinnupalla við uppsetningu 1. hæðar
Staðlaður tengipunktur: einingar boltaðar saman á hornum
Einingar á 2. hæð stilltar af við hífingu
Tveggja hæða einingasamsetning með forsmíðuðum Velfac-gluggum
2. hæð komin á sinn stað við Sölkugötu með Esjuna í baksýn
ÁFANGI 03

Frágangur

Þegar rýmiseiningarnar höfðu verið boltaðar saman tók við ytri einangrun, undirkerfi klæðningar og þakfrágangur. Innandyra sést vel hvernig nokkrar 2,55 metra einingar renna saman í bjart og opið alrými án truflandi súlna.

Drónamyndband og loftmyndir sýna hvernig húsið fellur inn í götumynd Sölkugötu í Mosfellsbæ.

Drónamyndband frá Sölkugötu
Bjart og opið alrými þar sem rýmiseiningar mætast
Innra rými í byggingu í Sölkugötu
Ytri einangrun og undirkerfi klæðningar við Sölkugötu
Gluggar og útveggir í Sölkugötu
Sölkugata séð úr lofti
Útsýni yfir uppsetningu í Sölkugötu