Staðlaðar einingar,
frjáls útfærsla.

Cubit-kerfið gengur út á staðlaðar rýmiseiningar sem má setja saman með fjölbreyttum hætti. Sameiginleg grunnmál og tengipunktar skapa frelsi til að móta hús eftir þörfum hvers verkefnis.

Cubit-hús í íslensku landslagi
Cubit Building CompanyHúseiningar sem Legókubbar
01 / KERFIÐ

Kerfið í hnotskurn

Cubit er húseiningakerfi þar sem einingum má raða saman á fjölbreyttan hátt. Lykilatriði þess eru tengipunktar sem eru alltaf eins og með sama millibili. Það fæst með því að lengd eininganna sé margfeldi af breidd þeirra.

Grunnbreidd eininganna er 2,55 metrar, sem samsvarar leyfilegri farmbreidd á vegakerfi Evrópu og er ráðandi á heimsvísu. Samsetningarmöguleikarnir eru því margir, svo lengi sem grunnmál byggingarinnar ganga upp í þessa stærð.

Með slíku kerfi opnast nýir möguleikar í notkun rýmiseininga. Þær má einangra að utan með samlokueiningum og klæða með hefðbundnum klæðningarkerfum. Hver og einn getur valið frágang án þess að það breyti notkun einingakerfisins.

Kerfið er þannig byggingarefni en ekki fyrirfram ákveðið útlit húss.

Tæknileg teikning af samsetningu rýmiseininga
02 / AÐDRAGANDI

Bakgrunnur

Stórir framleiðendur erlendis hafa framleitt tilbúnar húseiningar fyrir stór verkefni. Á Íslandi hafa meðal annars verið notaðar einingar frá kínverska framleiðandanum CIMC Modular Building. Slíkar einingar eru sérsmíðaðar með búnaði, fluttar sjóleiðina og settar upp á byggingarstað.

Sérsmíði af þessu tagi getur hentað stórum verkefnum en hagkvæmnin byggist oft á miklu magni. Stórir framleiðendur taka ekki að sér slík verkefni nema einingafjöldi sé töluverður. Cubit kerfið hefur ekki sömu takmarkanir um lágmarksfjölda eininga. Framleiðsla eininganna er að miklu leyti stöðluð og hægt er að raða þeim saman að vild.

Cubit-kerfið sækir innblástur í leikfangakubba, þar sem staðlaðar tengingar tryggja að allar einingar passa saman hvort sem þeim sé snúið, raðað hlið við hlið eða staflað. Markmið Cubit er að færa þennan einfaldleika og sveigjanleika yfir í húsbyggingar. Einingar eru settar saman á skömmum tíma og húsnæðið má stækka síðar með viðbótareiningum.

Samþykkt hafa verið einkaleyfi á kerfinu í Evrópu og Bandaríkjunum, og einkaleyfisumsóknir í öðrum löndum eru í vinnslu.

03 / HAGNÝTING

Hagnýtingargildi og mikilvægi

Samfélagsleg áhrif gætu orðið sérstaklega mikil í dreifbýli. Forsmíðaðar einingar auðvelda húsbyggingar þar sem aðgangur að vinnuafli er takmarkaður.

Einingakerfið getur auðveldað viðbyggingar og breytingar. Ef aðstæður breytast má taka húsið í sundur, flytja það á annan stað eða selja einingar til endurnýtingar.

Þegar nægilega margar einingar eru í umferð getur jafnframt myndast eftirmarkaður fyrir stakar rýmiseiningar. Þannig nýtist byggingarefnið áfram þótt upprunalegri notkun ljúki.

2,55 mGrunnbreidd eininga
StaðlaðTengipunktar með föstu millibili
EndurnýtanlegtHægt að flytja og raða á ný